Leita í fréttum mbl.is
Embla

Af Íslenskum Sokkum

socks Þarftu eitthvað að tjá þig um land og þjóð við útlenska vini og kunningja, en þorir ekki að segja það í eigin persónu? 

Ekki örvænta. Segðu það frekar með sokkum.

Iceland Socks er samansafn nokkurra kjaftforra sokka sem eru á ferðalagi um Ísland og ekkert hræddir við að tjá sig um upplifunina. Þessir góðu félagar voru myndaðir og settir af netið af okkur (Gogogic) og Iceland Express, enda er bara nauðsynlegt að koma svona snillingum í loftið.

Það besta er að þú getur ráðið bókstaflega öllu sem þeir segja og leyft hverjum sem er að sjá útkomuna. Afskaplega hentug leið til að láta allt flakka (engan dónaskap samt).

Sokkarnir eru heldur ekkert hræddir við að segja sína skoðun á þjóðmálunum, eins og sjá má í þessari stuttu klippu, þar sem þeir velta vöngum yfir virkjanakostum hér á landi.

Viltu losa um málbeinið? — segðu það með sokkunum.

J#  


En en en...

Já já. Þetta var ágætis kvöldstund, þarna á Hótel Nordica. Maturinn var fínn og félagsskapurinn góður. Fólkið frá Jónsson & Lemacks skemmti sér sennilega einna best - að minnsta kosti framan af - en þetta var greinilega þeirra kvöld. Einfaldast að óska þeim til hamingju með góðan árangur.

En mér finnst að það mætti fjölga flokkum og þá aðallega með tilliti til þess sem er að gerast á netinu. Þar er starfið orðið svo fjölbreytt. Langt frá því að snúast bara um auglýsingaborða (sem eru reyndar alltof oft unnir á síðustu stundu, sem einhvers konar eftirá pæling - og þannig er dregið úr nýtingu netsins sem miðils...)

Nú má finna heilu herferðirnar á netinu; sér útbúnar lendingarsíður, auglýsingaleiki, efni sem er unnið sérstaklega fyrir stór samfélög (youtube, facebook, etc), míkró síður o.s.frv. Þetta er ótrúlega kröftugur miðill sem hefur uppá svo margt að bjóða ef hann er nýttur rétt - og rétt nýting er klárlega bæði í þágu auglýsenda og neytenda.

Undir hvað fellur t.d. þetta, þetta eða þetta? Ja, eða þetta?

Það er alla veganna tímabært að fara að huga betur að netinu sem miðli, hér heima - og jafnvel sem þungamiðju auglýsinga og herferða. Það er ekki að ástæðulausu að þróunin erlendis er öll í þá áttina (og ekki að ástæðulausu).

Og í kjölfarið fjölgar vonandi lúðrunum sem eru veittir fyrir árangur á netinu. Í kvöld var hann að minnsta kosti einmanna, þessi eini sem var sleginn fyrir besta vefborðann - sem er þreyttasta einingin af öllu því sem má smíða fyrir þennan stórkostlega og gagnvirka miðil.

J#


mbl.is Jónsson & Lemacks með 8 Lúðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö ný verkefni

Ég hef verið ansi Blatur (blogg latur) upp á síðkastið. Hef ekki nennt að skrifa neitt af ráði. Þó er nóg að gerast á öllum vígstöðvum; heima, í fyrirtækinu og í þjóðfélaginu. Ég er til dæmis ný skriðinn inn á fertugs aldurinn. Það er voða spennandi. Strax farinn að finna fyrir aukinni svefnþörf, minnkuðu áfengisþoli og ég veit ekki hvað og hvað. 

Svo hafa neytendamálin verið að gera mig vitlausan upp á síðkastið. Verðlagið hér heima er alveg með ólíkindum. Enda er ég farinn að skoða það, í hvert sinn sem ég þarf að versla eitthvað, hvort ég geti sparað með því að panta það að utan. Því miður er það raunin - svona yfirleitt.

Svo er það pólitíkin. En ég þori ekki að ræða hana, né mínar skoðanir á henni, á opinberum vettvangi. Án gríns. Hvað segir það manni um stöðu mála? Veit ekki...

Annars er fyrirtækið alveg á fljúgandi ferð. Við vorum að skila af okkur 2 nýjum verkefnum á dögunum. Annað er fyrir Iceland Express og hitt fyrir auglýsingastofuna ENNEMM. Hægt er að skoða það sem skilað var með því að elta slóðirnar hér að neðan eða með því að fara á fyrirtækjabloggið. Svo er von á einhverju fleiru frá okkur á næstunni. Alltaf að :)

Þar til síðar. Mun hugsanlega reyna að bæta úr bletinni á næstunni.

J# 


Jólagógó 2007 er kominn!

Jólagógó 2007 er komið út! Spilið hér: http://www.gogogic.com/jolagogo2007

J#


Skegg Survivor

Nú hefur spennan heltekið skrifstofu Gogogic, enda er hinn árlegi "Skegg Survivor" nýlega hafinn. Fyrsti þátttakandinn var kosinn út fyrr í dag - með látum. Það er ljóst að nú þegar hafa menn skipað sér í fylkingar. Hvernig endar þetta? Fylgist með hér: http://gogogic.wordpress.com/

J# 


Skoðum fleira!

altec Ég vil taka mér stöðu, rétt örskamma stund, í skóm Kára Harðarsonar sem hefur verið æði duglegur við að benda á ýmislegt sem mætti flokka sem svínarí og nánast svik við íslenska neytendur. Það er nefnilega ýmislegt, hér heima, sem vert er að skoða nánar og hreinlega ótrúlegt hvað við látum bjóða okkur.

Þannig má til að mynda nefna græjuna á myndinni - Altec inmotion iM7 - en þarna eru á ferðinni sérstakir hátalarar fyrir ipod, sem flestir þekkja.

Í stórri verslun hér heima - sem vill láta tengja sig við hagstætt og gott vöruverð - má versla þessa græju fyrir litlar 29.995 krónur (eða nánast 30.000 krónur). Á vefnum amazon.com má finna sömu vöru á $133 eða 7.980 krónur miðað við gengið 60 krónur á hvern dal. Munurinn á útsöluverði hér og þar er hreinlega sláandi. 22.015 krónur!

Til gamans má geta að ef þessi græja er keypt af vefverslun amazon og flutt til Íslands með aðstoð shopusa.is algjörlega einsömul þá kostar tækið, hingað komið - með öllum gjöldum og afhent heim - 12.523 krónur.

Sparnaðurinn er því 17.472 krónur, ef miðað er við verð úr búð hér heima, og að auki fær maður þetta sent alla leið heim.

Hvað er að? Fyrirtækin hér heima gætu hreinlega verslað þessi tæki af smásölum í USA, flutt þau inn í gegn um þjónustufyrirtæki sem leggur enn frekar á vöruna og samt selt hana með 100-200% álagningu. mér er misboðið.

Þetta er heldur ekkert einsdæmi. Ég er búinn að skoða marga aðra hluti uppá síðkastið þar sem sagan er sú sama. Af þessari ástæðu hef ég ákveðið að versla ekkert hér heima fyrir jólin. Og þá meina ég ekkert. Ég ætla að flytja allt inn sjálfur í gegn um shopusa.is (sem ég á engin tengsl við, svo það sé skýrt) því það kostar mig töluvert minna - jafnvel með fullum gjöldum, tollum o.s.frv.

Og þó þetta tengist fréttinni ekki beint þá tengist þetta samt því hér er um að ræða neytendamál. Það er nefnilega greinilegt á öllu að það mætti skoða meira, herða tökin víðar og spyrna við fótunum þegar kemur að niðurlægingu íslenskra neytenda.

J# 


mbl.is Húsrannsókn byggð á upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt málfar (eða prófanir hugbúnaðar í raunumhverfi...)

business Það er skemmtileg frétt á forsíðu mbl.is undir liðnum "viðskipti". Reyndar er ekki ólíklegt að hún hverfi innan skamms og því er ágætt að sjá hvernig hún kom út á forsíðunni þegar þetta er ritað (sjá mynd).

Hér er sennilega um að ræða prófanir á hugbúnaði í raunumhverfi - sem er aldrei jákvætt. Það er þó skárra en innbrot á vefsvæðið, sem er annar möguleikinn. Þriðji möguleikinn er sá að hér sé um klassískt fikt að ræða.

Í öllu falli er fréttin skýr og skorinort. Hún kemur því klárlega á framfæri að ekki er allt með felldu - sem hefur þó kannski ekki verið upphaflegur tilgangur hennar.

J# 


Næsta síða »

Höfundur

Jónas Björgvin Antonsson
Jónas Björgvin Antonsson
Höfundur er laus við vit. jonas[hjá]gogogic.com
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nota bene

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband