Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Enski boltinn

Pakkinn þéttist

Mitt lið (Chelsea) tapaði fyrir Liverpool í gær (til hamingju tengdapabbi). Þó það hafi verið frekar sárt þá get ég huggað mig við sigur Arsenal á Manchester United í dag. Mér er samt ekkert sérlega vel við Arsenal né illa við United. Sigurinn þýðir einfaldlega að efstu liðin í ensku deildinni hafa nálgast hvort annað. Pakkinn er að þéttast. Það er sigur fyrir fótboltann.

Í framhaldinu ætti deildin að verða töluvert meira spennandi það sem eftir lifir móts. Frábært.

J#


mbl.is Henry tryggði Arsenal sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir Eggert nú?

West Ham steinlá í kvöld. Liðið tapaði mjög illa fyrir Bolton en þetta er þriðji tapleikurinn í röð. Liðið er bara í bullandi fallhættu. Þá er bara spurning hvað á að gera. Ég vil leggja mitt af mörkum og þvi langar mig til þess að beina eftirfarandi orðum sérstaklega til Eggerts Magnússonar.

Kæri herra Eggert.

Ég heiti Jónas Björgvin Antonsson. Við þekkjumst ekki neitt en ef þú lest þetta þá þýðir það að þú hafir álpast (sennilega fyrir slysni) inn á blogg síðuna mína. Ég hef verið alvarlega hugsi yfir gengi nýja Íslendingaliðsins - West Ham - og tel mig hafa sitthvað fram að færa sem gæti reddað málum.

West Ham á við vandamál að stríða. Þar með átt þú við vandamál að stríða. Bara, "Let's face it" (enska) þú ert í vondum málum. Þig vantar ráð til að aga mannskapinn. Til dæmis einhverja refsingu sem er svo ægileg að leikmannahópurinn er tilbúinn að gera það sem gera þarf svo hann megi sleppa við hana.

Með þetta í huga langar mig til þess að benda þér á Kancho - Japanskan sið sem ég tel vera upplagðan til þess að mynda grunn að refsikerfi sem fær menn virkilega til þess að svitna og taka á því. Ég legg til að þú sjáir, fyrst um sinn, sjálfur um að framkvæma Kancho í kjölfar taps. Taktu allan mannskapinn fyrir. Ég er þess full viss að árangurinn mun ekki láta á sér standa.

Með vinsemd og virðingu,

J#


mbl.is West Ham steinlá á Reebok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jónas Björgvin Antonsson
Jónas Björgvin Antonsson
Höfundur er laus við vit. jonas[hjá]gogogic.com
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nota bene

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband